Til móts við betri bæ, gestapenni

Á lítilli eyju, þar sem íbúar hugsa stórt, skipta skipulags- og umhverfismál afar miklu.  Skipulagsmál hafa í fáatíma verið fyrirferðameiri en seinustu tvö ár.  Eftirspurn eftir lóðum hefur verið með eindæmum mikil og á það bæði við um atvinnushúsnæði, einbýlishús og fjölbýlishús.  Af þessum ástæðum hefur formaður skipulagsráðs, Gunnlaugur Grettisson tekið við áskorun minni og gerist hér með gestapenni og skrifar hér um skipulagsmál í Vestmannaeyjum

Til móts við betri bæ.
Gestapenni: Gunnlaugur Grettisson skrifar um skipulagsmál

_MG_4754Landrými í Vestmannaeyjum er af augljósum ástæðum takmörkuð auðlind og ber okkur að umgangast hana sem slíka. Mikil breyting hefur orðið sl. ár í skipulagsmálum í Eyjum einkum þegar kemur að lóðaúthlutunum. Allt snýst þetta um framboð og eftirspurn. Við höfum reynt að vera á undan eftirspurninni með því að skipuleggja ný svæði sem og að benda áhugasömum aðilum á lóðir í grónum hverfum. En eftirspurnin er mikil og má segja að hún hafi aukist jafnt og þétt sl. mánuði. Það er stefna okkar að hafa stöðugt í boði góðar byggingalóðir fyrir íbúðarhús og fyrirtæki. Það hefur því mætt mikið á starfsmönnum okkar á Umhverfis- og framkvæmdasviði en þar eins og öðrum stöðum í bæjarkerfinu erum við vel mönnuð hæfu starfsfólki. Margar lóðaúthlutanir koma bæði til afgreiðslu hjá Umhverfis og skipulagsráði og Framkvæmda- og hafnarráði og hafa ráðin unnið mjög vel saman þegar svo ber við.

Íbúðarhúsnæði
Á vef Vestmannaeyjabæjar er að finna kort yfir lausar lóðir í sveitarfélaginu. Margar lóðir eru í boði og eru þar bæði um að ræða lóðir í eldri hverfum sem og nýjar götur og þá bæði fyrir einbýli sem og fjölbýli. Á síðustu fundum Umhverfis- og skipulagsráðs hefur fjölmörgum lóðum úthlutað.

Nýjar lóðir í boði.
Á sl. ári var sett í gang vinna við að skipuleggja nýjar lóðir fyrir íbúðarhús um leið og gjaldskrá lóðagjalda var endurskoðuð með það fyrir augum að gatnagerðargjald skuli standa undir gatnagerðinni sjálfri. Fyrsta gatan sem lagt var af stað með var lenging Litlagerðis til vesturs og fékk sú ákvörðun mjög góðar viðtökur. Skipulagðar voru fjórar einbýlishúsalóðir sem svo voru boðnar út. Eftirspurn var meiri en framboð og því var sýslumaður fenginn til þess að draga út heppna lóðahafa. Þeir hafa nú skilað inn teikningum sem hefur ráðið samþykkt. Um er að ræða glæsileg hús og verður gaman að sjá þau rísa á næstu misserum.  Í næsta nágrenni við Litlagerði eru þegar í boði fleiri góðar lóðir s.s. í Suðurgerði, Miðgerði og Austurgerð og einnig við Smáragötu.
Í Vesturbænum er nýbúið að úthluta öllum lóðunum í síðari nýja botnlanganum í Bessahrauni og margir aðrir spennandi kostir í næsta nágrenni s.s. við Áshamar, Búhamar, Dverghamar og víðar.

Lóðir í eldri hverfum.
Mikill áhugi hefur einnig verið á lóðum í grónum hverfum og hefur ráðið á síðustu mánuðum úthlutað ágætum fjölda þannig lóða til einstaklinga og verktaka. Þegar byggt er í eldri hverfi þarf að gæta sérstaklega samræmis og bera virðingu fyrir því umhverfi sem fyrir og gilda ákveðnar reglur þar um. Stór bygging rís nú á Baldurshaga og búið er að úthluta lóð fyrir fjölbýlishús við Hilmisgötu.
Eins og áður segir er að finna kort yfir lausar lóðir á vef Vestmannaeyjabæjar. Þétting byggðar er mikilvæg og verður götumyndin mun skemmtilegri þegar búið er að stoppa í götin sem svo má að orði koma.

Lóðir fyrir atvinnuhúsnæði.
Atvinnurekendur í Vestmannaeyjum hafa ekki látið sitt eftir liggja og þar má nefna mikla ásókn í lóðir á Eiðinu. Þar er nú að rísa glæsileg kæli- og frystigeymsla Vinnslustöðvarinnar og búið að úthluta stórri lóð fyrir vatnsverksmiðju á næstu lóð. Með þeim úthlutunum eru flestar lóðir á Eiðinu farnar en ef Stórskipahöfn norðan Eiðis verður að veruleika mun koma til meiri uppfylling þar sem þýðir aftur fleiri góðar lóðir sem og gáma og athafnasvæði. Sá möguleiki er sannarlega spennandi fyrir okkur og stórskipahöfn nauðsynleg fyrir Eyjar þegar til framtíðar er litið. Af öðrum málum má nefna, nýja landvinnslu VSV, umsókn Íslandspósts um lóð fyrir nýtt pósthús og lóðaumsókn Godthaab í Nöf. Þá hefur Ísfélagið möguleika á byggingu kæli- og frystigeymslu á lóð sinni og bjórverksmiðja er í burðarliðnum.

Næstu skref.
Umhverfis- og skipulagsráð hefur þegar sett af stað grunnvinnu við skipulagningu íbúðarhúsalóða við Hraunveg,  sunnan Hraunbúða og vestan við Hrauntún. Það er gert ráð fyrir einbýlishúsum, parhúsum og raðhúsum. Svæðið er gríðarlega spennandi í ljósi nálægðar við Hamarsskóla, Kirkjugerði og Hraunbúðir. Einnig hafa komið fyrirspurnir um einbýlishúsalóðir með möguleika á að hafa lítið hesthús á lóðinni eins og víða er verið að bjóða upp á. Það mál er í skoðum hjá ráðinu og standa vonir okkar til þess að við náum að skipuleggja og bjóða þess háttar svæði á næstu árum.
Annað spennandi svæði sem nefna má er t.d. malarvöllurinn við Löngulág. Með tilkomu nýs íþróttahúss við Hásteinsvöll þar sem m.a. verður vetraræfingaaðstaða fyrir knattspyrnu og frjálsar íþróttir minnkar þörfin fyrir malarvöllinn. Svæðið er mjög mikilvægt og ekki síður dýrmætt. Þar má sjá fyrir sér sambland af íbúðarbyggð, verslun og þjónustu sem og svæði fyrir léttan iðnað. Það gildir um þetta svæði sem og önnur að gæta þarf að umhverfinu og bera virðingu fyrir því sem fyrir er í næsta nágrenni. Tryggja þarf þeim athöfnum og viðburðum sem í dag fara fram á svæðinu annan nýjan og s.s. íþróttaiðkun sem og árlega þrettándagleði ÍBV.

Að lokum.
Kjörnir fulltrúar eiga að leggja línunar og ákveða leikreglurnar í samræmi við gildandi lög og reglur. Ef farið er að þeim leikreglum er ekki síður mikilvægt að kjörnir fulltrúar séu ekki mikið að þvælast fyrir einkaframtakinu heldur leyfa því að blómstra. Einungis þannig fáum við þann bæ sem við viljum búa í, þann bæjarbrag við eigum skilið og það mannlíf sem er best.

Gunnlaugur Grettisson
formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sælir félagar.

Það er sannur heiður að fá að vera gestapenni á bloggsíðu Elliða Vignissonar af Fögruvalla- og Oddstaðaætt, þangað  einungis hleypt úrvalsfólki. Ágæt grein núverandi formanns umhverfis-og skipulagsráðs hér á undan, er um margt ágætt innlegg í mikilvægan málaflokk. Jafnvel þann mikilvægasta í sveitastjórnarmálum yfirleitt. Það hefir orðið mikilvæg og ánægjuleg breyting í þessum málum hér í Eyjum, undanfarin ár. Segja má að árin þar á undan hafi hver "katastrófan" rekið aðra og handaflið eitt látið ráða. Skipulagsmál eru nú einu sinni þannig í eðli sínu, að erfitt er að leiðrétta gerð mistök. Ég tel að við Eyjamenn höfum haldið vel á þessum málun undanfarið, það hefir verið ánægjulegt að starfa innan þessa geira með góðu fólki, sem hefir lagt sig fram um að vinna á heiðarlegan og sanngjarnan hátt.  Sú ánægjulega þróun hefir átt sér stað að undanförnu, að eftirspurn eftir bæði íbúða- og atvinnulóðum hefir aukist. Nú er svo komið, að ekki er eftir mikið skipulagt pláss á  hafnarsvæðinu. Það leiðir hugann að svæðinu kringum Þórs minnisvarðann. Eigum við að mæta vaxandi þörf, með því að nýta það svæði undir hafnsækna starfsemi? Ég hefi svolítið velt þessu fyrir mér og hallast að því, að ekki sé lengur stætt á, að geyma það öllu lengur. Vafalaust eru skiptar skoðanir um það, en ég held að tímabært sé að skoða það vandlega. Einnig er það mitt mat, að gömlu fiskvinnsluhúsin Ísfélag-Fiskiðja, eigi að hverfa hið allra fyrsta. Veðbönd gætu hugsanlega verið að þvælast eitthvað fyrir, en ég tel eitt af forgangsverkefnum bæjaryfirvalda, að leiða þau mál til lykta. Gífurleg tækifæri leynast á þessu svæði. Nú stendur til að rífa norðurhús Vinnslustöðvarinnar á næstu dögum eða vikum. Eftir því sem ég best veit, eru ótrúlega lágar fjárhæðir nefndar í kostnað við niðurrif. Okkur ætti því ekki að verða skotaskuld úr því, að rífa Fiskiðju-Ísfélagshúsin. Kveðja fóv.

Friðbjörn Ó. Valtýsson (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 14:54

2 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Sæll Elliði þú minnist á umhverfismál,hvernig væri að þú fengir þér göngu inn í spraungu og skoðaðir sóðaskapin sem fylgir Fiskiver og Steipustöðinni.Þetta er mesti ferðamanna staður Eyjanna, en hvílík hörmúng.Hvað ætlar þú að gera í málinu?kv

þorvaldur Hermannsson, 29.2.2008 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband