Tölurnar eru hærri en ég vonaði

Þá liggur loks fyrir skýrsla Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen um forsendur jarðgangagerðar milli lands og Eyja eða “Vestmannaeyjar, Road Tunnel Connection, Pre-feasibility assessment” eins og stendur á forsíðunni.  Skýrsla þessi var unnin fyrir Vegagerðina að beiðni Bæjarstjórnar Vestmannaeyja i þeirri viðleitni að fá fram óháð mat á forsendum jarðgangnagerðar þar sem gögn og tölur höfðu verið verulega misvísandi.

Helstu niðurstöður hafa verið birtar í fjölmiðlum en í lok niðurstöðukafla skýrslunnar stendur:

Niðurstaða mats okkar er eins og að framan segir að tæknilega sé mögulegt að gera veggöng milli lands og Eyja og að kostnaðurinn verði líklega á bilinu 50 til 80 milljarðar króna. Á hinn bóginn er álitamál sem áhöld eru eða ættu að vera um hvort nokkurn tímann geti verið réttlætanlegt að grafa og reka þetta löng jarðgöng djúpt undir sjó á jafn jarðfræðilega virku svæði og Vestmannaeyjasvæðið vissulega er og dæmin sanna.

Ég dreg ekki fjöður yfir að tölur þær sem þarna eru nefndar eru hærri en ég vonaði, og sennilega hærri en allir þeir sem vilja bæta samgöngur á Íslandi vonuðu.  Draumur okkar allra var að tölur þessar væru lægri og að hægt væri að vinda sér tafarlaust í gerð slíkra jarðganga.

Fyrir bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyjum vakir það eitt að bæta samgöngur eins mikið og mögulegt er.  Hér “öskarar” allt á bættar samgöngur og skiptir þar einu hvort litið er til atvinnulífsins, menningarlífsins, íþróttastarfs eða almennra búsetuskilyrða.  Ég held að almennur skilningur ríki meðal landsmanna á stöðu okkar þótt einn og einn kjáni geri sig stundum breiðan með barnalegum “frösum” sem ekki verða hafðir eftir hér.  Ég virði það þó við landsmenn alla að ræða samgöngur á málefnalegum nótum enda eru samgöngur almennt greiddar af almannafé.  Þá kemur það mér ekki á óvart að fólk vilji staldra við þegar það heyrir tölur eins og 50 til 80 milljarðar.  Svo mikið er víst að ég hef engan Eyjamann heyrt halda því fram af fullri alvöru að reynist þessar tölur á rökum reistar þá eigi samt að ráðast í framkvæmdina.  Hinsvegar hefur verið deilt um þær forsendur sem þessar og aðrar tölur hafa verið byggðar á, en það er svo annað mál.

Þá er það einnig mitt mat að þverpólitískur vilji sé innan ríkistjórnar og reyndar innan alþingis til að ráðast í verulegar framkvæmdir til bæta samgöngur milli lands og Eyja eins mikið og verða má.  Verkefni næstu daga er að fara vandlega yfir þær tölur og þær niðurstöður sem birtast í skýrslu VST og meta hvort hægt sé að byggja ákvörðun um framtíðar samgöngur á þessari vinnu.  Sjálfur hef ég ekki enn komist til þess, né haft tök á að leita álits hjá mér fróðari mönnum og kem því ekki til með að tjá mig efnislega um skýrsluna.

Svo mikið er víst að upphrópannir og gífuryrði eru vond meðöl í þessari stöðu.

Ákvörðun um þetta kemur þó af sjálfsögðu ekki til með að liggja hjá mér eða öðrum stjórnendum Vestmannaeyjabæjar.  Í fjölmiðlum hefur komið fram að ríkisstjórn komi til með að fjalla um skýrsluna á fundi sínum á föstudaginn og það er jú þeirra að taka ákvörðun þótt sannarlega leggi þeir mikið upp úr samstarfi við okkur heimamenn.

 


mbl.is „Álitamál hvort göng til Vestmannaeyja séu réttlætanleg"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Heimsendaspár um göngin

Áform um Hvalfjarðargöng settu eðlilega mark sitt á þjóðmálaumræðuna þegar við blasti að ráðist yrði í framkvæmdir. Margir lýstu ánægju með að göng undir Hvalfjörð væru loksins í sjónmáli og hlökkuðu til að losna við að aka fyrir fjörð í öllum veðrum. Aðrir voru neikvæðir, höfðu jafnvel uppi gífuryrtar heimsendaspár. Nokkur dæmi skulu tilgreind úr safni tilvitnana í skrif og ummæli andstæðinga Hvalfjarðarganga.

Friðrik Hansen Guðmundsson í samtali við fréttamann Útvarps 1. febrúar 1996, eftir fund Verkfræðingafélagsins um Hvalfjarðargöng:

"Það liggur bara alveg fyrir eftir þennan fund að mínu mati að menn vita hreint og klárt ekkert hvað þeir eru að fara út í. Það verður ekki ljóst fyrr en menn fara að grafa og bora og sprengja þarna niðri. Þarna eru misgengissprungur, berggangar, þetta er allt saman vatnsleiðandi berglög sem þarna eru á ferðinni og ef menn lenda í þessum göngum þegar það er verið að sprengja niður á við, þar verða menn að vinna í vatni og sprengja í vatni með vatnið alltaf á sér og ef menn lenda í miklum lekavandamálum eins og í Vestfjarðagöngum, sem getur vel komið þarna upp, að þá sér maður fram á að menn gefist bara hreinlega upp."

Friðrik Hansen Guðmundsson í fréttum Stöðvar tvö 1. febrúar 1996:

"Það síðasta sem við þurfum á að halda sem stöndum í útflutningi á verkfræðiþekkingu er stórbrotið klúður á heimavelli og ef illa tekst upp í Hvalfjarðargöngunum þá mun það varpa skugga ótrúverðugleika yfir alla íslensku verkfræðistéttina."

Friðrik Hansen Guðmundsson í fréttum Sjónvarps 1. febrúar 1996:

"Ég er að benda á það að eftir þeirri reynslu sem menn hafa erlendis frá þá geta menn lent í hverju sem er þarna ofan í jarðgöngum. Menn eiga þar á hættu að lenda í miklum lekavandamálum eins og menn lentu í í Vestfjarðagöngum. Menn eiga þar á hættu að lenda í vandamálum vegna jarðskjálfta ef þarna á sér stað jarðskjálfti. Það er alveg óþekkt hvað gerist í slíkum göngum sem þessum í jarðskjálfta í þessu bergi sem við höfum hér. Við erum að horfa upp á möguleika á verulegum stórslysum ofan í þessum jarðgöngum ef að þarna á sér stað árekstur ofan í þessum djúpu jarðgöngum. Þarna getur átt sér stað bruni, þarna getur átt sér stað slys og bruni ofan í þessum jarðgöngum að þá geta menn lent þar í gríðarlegum slysum og eins og málin blasa við og standa við sérstakletga eftir þennan fund hér í dag þá hefur ekkert komið fram sem að annað en að styrkja mig í þeirri trú að þarna geta menn lent í stórbrotnu klúðri sem að bitnar síðan á okkur öllum sem búum í þessu landi."

Gunnlaugur Þórðarson, lögmaður, í Morgublaðsgrein 20. febrúar 1996:

"Gerð ganganna mun án efa kosta mannslíf."

"Mér er ekki kunnugt um neinn íslenskan verkfræðing, tæknifræðing né arkitekt, en þeir vera að standa ábyrgir fyrir gerðum sínum, sem fæst til að taka ábyrgð á eða jafnvel mæla með jarðgöngunum."

Gunnlaugur Þórðarson, lögmaður, í Morgunblaðsgrein 29. febrúar 1996:

"Í þessu máli, sem svo mörgum öðrum milli íslensku þjóðarinnar og norskra stjórnvalda, gildir gamla máltækið "frændur eru frændum verstir". Það er dapurlegt að hugsa til þess að það mun enn, á sinn hátt, rætast í jarðgöngunum undir Hvalfirði."

Magnús Sigurðsson skrifar í DV 23. febrúar 1996:

"Þeir sem ég hef heyrt ræða göngin telja þau beinlínis óðs manns æði og það skipti verulegu máli að þau verði ekki að veruleika."

Ágúst Sigurðsson skrifar í DV 29. febrúar 1996:

"Hér er rennt blint í sjóinn, í þeirra orða fyllstu merkingu, með gerð ganganna og þau eiga því miður eftir að verða stór og mikil martröð allrar þjóðarinnar á komandi árum. Mótmæli verða því að koma fram."

Jónas Kristjánsson í forystugrein í DV 27. febrúar 1996:

"Til marks um þýlyndi Íslendinga má hafa, að engin samtök grípa til varna gegn Hvalfjarðargöngum. Fólk tuðar gegn göngunum í hornum sínum, en notar ekki samtakamátt til að koma í veg fyrir, að göngin verði að einni helstu martröð þjóðarbúsins á næstu árum."

"Ef Íslendingar væru ekki þýlyndari en aðrar þjóðir, létu þeir ekki rugl af þessu tagi yfir sig ganga hljóðalaust. Stofnuð væru samtök til að gæta hagsmuna skattgreiðenda og vegfarenda til þess að berjast gegn því, að vandræðin yrðu meiri en þau eru þegar orðin."

"Stofna þarf virk almannasamtök til að vernda viðhald og framkvæmdir við veginn fyrir botn Hvalfjarðar og hindra frekari ábyrgð skattgreiðenda á göngunum."

Ólafur Sigurgeirsson á Þaravöllum í samtali við Tímann 24. febrúar 1996:

"Þessi göng eru eitt mesta umhverfisslys landsins og stórskaði fyrir okkur hér og alla landsmenn. Göngin eiga eftir að verða dragbítur á þjóðfélaginu í áratugi og komast sennilega aldrei í gagnið."

Gunnlaugur Þórðarson snýr við blaðinu

Gunnlaugur Þórðarson, hæstaréttarlögmaður, var í hópi þeirra sem hvað harkalegast gagnrýndu áform um Hvalfjarðargöng á opinberum vettvangi og vöruðu við að "anað yrði út í" þessar framkvæmdir. Hann skrifaði greinar í Morgunblaðið, 20. febrúar 1996 undir fyrirsögninni "Þjóðardoði" og 29. febrúar 1996 undir fyrirsögninni "Hvalfjarðargöngin, Smugan og Mozart".

Gunnlaugi snerist hugur svo um munaði og hann vitnaði síðar í tvígang í Morgunblaðinu um ágæti Hvalfjarðarganga. Þann 25. október 1997 skrifaði hann grein undir fyrirsögninni "Að skjátlast er mannlegt" og rakti hvernig undirmeðvitund sín hefði rumskað þegar fréttir bárust um glæsilegan árangur við gangagerðina:

"Gat það verið, að baráttugleðin í fyrrgreindum blaðagreinum hefði leitt mig á villigötur? Og lét þetta mig ekki í friði. Ég varð að skoða verkið með eigin augum."

Gunnlaugur fékk síðan leyfi til að skoða Hvalfjarðargöng í fylgd Hermanns Sigurðssonar, verkfræðings og þáverandi staðarstjóra Fossvirkis í Hvalfirði. Eftir þá heimsókn skrifaði Gunnlaugur Þórðarson m.a.:

"Heimsóknin í göngin sannfærði mig um , að þar væri unnið stórkostlegt mannvirki, sem yrði þjóðinni lyftistöng og væri vottur þess stórhugar, sem ríkja ætti með íslensku þjóðinni."

"Öryggistilfinningin þarna neðanjarðar var dásamleg. Manndómurinn í verkinu er þeim, sem að því standa, til sóma. Í samræmi við áðurnefnt spakmæli hlýt ég að leiðrétta orð mín og hlakka til að fara um Hvalfjarðargöngin fullfrágengin norður á Húsavík að rúmu ári. Til hamingju Ístak og Fossvirki!"

tekið af spolur.is

Pálmi Freyr Óskarsson, 25.7.2007 kl. 05:40

2 identicon

Þessi athugasemd er náttúrulega bara snilld. Þarna sjá menn bara að það er nákvæmlega það sama að gerast núna. Svo finnst mér alveg makalaust að vst komi með skýrslu uppá 50-80 milljarða og vegagerðin uppá 70-100 milljarða en svo aftur á móti norsku gæjarnir 15-20 milljarða. Og hverjum ætla menn að trúa? Ætla menn að trúa mönnum hérna heima sem hafa littla þekkingu á þessu eða þessum norsku sem vinna við þetta allt árið og hafa gert í fjöldamörg ár. Þetta er náttúrulega bara út úr kortinu og það skal enginn segja mér það að norsku gæjarnir séu að bulla eitthvað þar sem að þeir eru einir af þeim stærstu í heiminum.

haffi halldórs (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 09:10

3 Smámynd: Anton Þór Harðarson

Haffi Halldórs, ég má til með að hryggja þig aðeins varðandi þessa "norsku gæja" norðmenn hafa ekki verið að gera góða hluti í jarðgöngum síðustu ár, hér á mínum heimaslóðum hefur Evrópuvegur 18 (E18) verið lokaður í 6 mánuði þar sem að 3 göng voru ónýt, 25.des síðastliðin lá við stórslysi þegar ein þeirra hrundu saman rétt á eftir að bíl hafði farið í gegn. Og það eru því miður fleiri dæmi um skandal í jarðgangnagerð hérna síðustu árin. En var ekki einhverntíman verið að spá í að leggja göng sem væru á floti, þ.e.a.s. nokkurskonar rör sem yrði stagað niður í botninn, sá eitthvað um að japanir ´væru með nokkur þannig göng.

Anton Þór Harðarson, 25.7.2007 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband