Eyjamenn vona það besta en búa sig undir það versta

SV300513Nú fyrir stundu lauk fundi hagsmunaaðila í sjávarútvegi hér í Vestmannaeyjum.  Á fundinn sem útvegsbændafélag Vestmannaeyja boðaði til voru boðaðir fulltrúar fiskvinnslufólks, sjómanna, vélstjóra, skipstjóra og stýrimanna, útgerðarmanna og Vestmannaeyjabæjar. Upphaflega var von á sjávarútvegsráðherra en hann varð að boða fjarveru þar sem ófært var til Eyja.

Fundurinn fór vel fram og einhugur var alger.  Sjómenn lýstu því að þeir teldu meiri loðnu nú við suðurströndina en undanfarin 3 ár.  Þá lýstu margir yfir áhyggjum af þeirri gjá sem er milli mælinga Hafrannsóknastofnunar sem nánast fer með ákvörðunarvald í málinu og sjómanna.  Fundurinn var sammála því að hluti vandans stafaði af því að starfsmenn Hafró eru almennt búsettir í Reykjavík, bæði í fjarlægð frá miðunum og þeirri þekkingu sem er að finna í sjávarbyggðum.  Þannig liggja hafrannsóknarbátarnir nú bundnir við bryggju í Reykjavík á meðan sjómenn mæla loðnu um allan sjó.  Eðlilega vaknar sú spurning hjá hagsmunaaðilum, sem tapa tugum milljóna á hverjum degi, hvort starfsmenn sætu heima hjá sér ef þeir væru búsettir í Vestmannaeyjum og rannsóknabátarnir væru gerðir út héðan.

Allir voru fundarmenn á því að enn væri góð von til að veiðar yrðu heimilaðar á ný innan fárra daga, jafnvel þótt varlega yrði farið til að byrja með.  Eyjamenn vona því það besta en búa sig undir það versta eins og meðfylgjandi ályktun ber með sér:

Vestmannaeyjum 23. febrúar 2008
Í dag funduðu hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum. Á fundinn voru boðaðir fulltrúar fiskvinnslufólks, sjómanna, vélstjóra, skipstjóra og stýrimanna, útgerðarmanna og Vestmannaeyjabæjar.
Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun einróma:

Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum taka heilshugar undir ályktun Bæjarstjórnar Vestmannaeyja um að: ríkið láti tafarlaust af íþyngjandi álögum á sjávarútveginn, látið verði af handaflsaðgerðum í tilflutningi aflaheimilda, opinber umræða verði ábyrgari, fræðasviðið sjávarútvegs verði styrkt, hafnaraðstaða verði stórbætt og hvalveiðar hafnar með auknum þunga. Meginn þorri fjölskylda í Vestmannaeyjum á viðurværi sitt undir rekstrarumhverfi sjávarútvegsins og vill fundurinn að mótvægisaðgerðir taki mið af því.

Fundurinn tekur einnig einnróma undir ályktun VM - Félags vélstjóra og málmtæknimanna og skorar á stjórnvöld að koma til móts við þá sjómenn sem verða fyrir tekjuskerðingu vegna nýlegra stjórnvaldsaðgerða. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hvetja því ríkisstjórn til að hækka sjómannafrádrátt og greiða sjómönnum laun til að stunda öryggisfræðslu og sækja öryggisnámskeið í heimabyggð. Slys til sjós eru allt of algeng og löngu tímabært að lyfta grettistaki í þeim efnum.

Fundurinn hvetur ríkisstjórn til að bæta fiskvinnslufólki tekjutap og huga sérstaklega að kjörum fiskvinnufólks sem verður fyrir mikilli skerðingu ef aflabrestur verður sá sem nú stefnir í. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum hvetja stjórnvöld til að fjárfesta í starfs- og endurmenntun starfsfólks í fiskvinnslu og gera þeim jafnframt kleift að stunda slíkt nám á dagvinnutíma þegar hráefni er ekki til staðar og það haldi dagvinnulaunum á meðan á námskeiðum stendur. Þannig verður best brugðist við breyttum aðstæðum og horft framtíðar á tímum mikilla tæknibreytinga og samdráttar í fiskafla.

Þá telur fundurinn það afar mikilvægt að tekin verði upp sú leið að gefa út jafnstöðukvóta (lágmarkskvóti sem ætíð fær að standa) til að skapa veiðum og vinnslu kjölfestu. Sjávarútvegur er ekki frábrugðin öðrum viðskiptum hvað varðar þörfina fyrir stöðugleika. Áhrif veiða í hlutföllum við áhrif náttúrunnar, svo sem át hvala og fugla, eru ekki slík að óttast þurfi slíka lágmarksveiði. Þetta myndi hinsvegar bæta rekstrarskilyrði sjávarútvegsfyrirtækja og stórauka launaöryggi launþega á landsbyggðinni.

Að lokum krefst fundurinn þess að fulltrúar þeirra sem fara með ákvörðunarvaldið hvað veiðar varðar fari tafarlaust á miðin til að sinna rannsóknum. Vinnubrögð og rannsóknir þær sem eru forsendur ákvörðunartöku um veiðistopp á loðnu eru að mati fundarins afar gagnrýnisverð og mikið bil milli mats Hafrannsóknastofnunar og mats sjómanna sem hafa saman árhundruða reynslu af loðnuveiðum. Fjölskyldur og fyrirtæki í Vestmannaeyjum tapa tugum milljóna á hverjum degi sem veiðistopp er í gildi og það lágmarkskrafa að fulltrúar ákvörðunarvaldsins vandi til vinnu og setji vöktun í forgang.

Fundurinn telur að í engu megi hvika frá ofangreindum punktum ef sjávarútvegurinn á að þola þær þrengingar sem nú blasa við. Alþingi og ríkisstjórn þarf því tafarlaust að sýna festu í störfum sínum. Lýðskrum og vingulsháttur verður að víkja fyrir aðgerðum sem styrkja sjávarútveginn.
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alveg skelfilegt að sjá þessa hnignun í sjávarútvegnum,blómlegir kaupstaðir líkt og eyjar og fleiri staðir á landinu mega þola ef þeir þola þessa lágkúru af misvitrum pólítíkusum.maður fær það á tilfinninguna að þetta muni réttlæta það hjá okkar misvitra Alþingi að hér eigi allstaðar að koma stóriðjuverksmiðjur í málm og Olíusulli.Að hugsa sér þegar ákvörðun um stopp á loðnuveiðar var ákveðinn núna í vikunni að þá voru Rannsóknarskipin bæði bundin við bryggju í Reykjavík,og voru það enn í morgun.Svona stjórnunarhættir sýna og sanna að ekki er hugsað fram fyrir þröskuldinn hjá Stjórn þeirra sem með þessa ákvörðun fara.

Númi (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 23:37

2 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Hvernig fer svona með fólk í eyjum,sífeldar hrakfarir brunar,skerðingar og hækkanir,á ekki að hækka fargjald í Herjólf nú líka flutningsgjöld,hvar á fólk að fá peninga til að lifa,þegar eingin vinna verður.

Guðjón H Finnbogason, 24.2.2008 kl. 15:08

3 identicon

Fer ekki að verða kominn tími á að við  eyjamenn röðum okkur upp í Ártúnsbrekkunni einhvern föstudagseftirmiðsdaginn og stoppum alla umferð.

RagnaB (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 16:44

4 identicon

Ég landkrabbinn Númi,vil taka þátt í bílastoppinu með ykkur eyjamönnum í Ártúnsbrekkunni,góð hugmynd hjá þér RagnaB.

Númi (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband