Fólkinu fjölgar í Eyjunum enn

stakkoÉg hef það fyrir reglu að fylgjast náið með íbúaþróun í Vestmannaeyjum.  Staðan hefur því miður verið sú að fólki hefur fækkað nánast stöðugt síðan 1991.  Mest varð fækkunin á þessum tíma á árunum 2003 til 2004 en þá fækkaði um 122 íbúa.  1. desember síðastliðinn bjuggu 4075 íbúar í Vestmannaeyjum og hafði þá fækkað úr 4923 árið 1991. 


Það er sannfæring mín að neikvæðni og barlómur sé það versta sem nokkuð samfélag getur gert sjálfu sér.  Sjálfsvirðingin og baráttuþrekið hlýtur hnekk af slíku.  Auðvitað er spurning hvort kemur á undan eggið eða hænan, fækkunin eða barlómurinn.  Í mínum huga er það að minnsta kosti ljóst að þetta tvennt hefur áhrif hvort á annað.


Mín bjargfasta trú er sú að árið 2007 verði árið sem ber með sér bjartari tíma í íbúaþróun í Vestmannaeyjum.  Almenn sátt virðist ríkja í samfélaginu og vilji til breytinga er mikill.  Óvenju bjart er yfir sjávarútvegi, fyrirtækin hafa verið að styrkja sig mikið, skip í smíðum, aflaheimildir keyptar, aðstaða til vinnslu stórefld og þannig mætti áfram telja.  Fasteignamarkaður í Vestmannaeyjum hefur verið líflegur og fjöldi þinglýstra kaupsamninga árið 2006 var meiri en nokkru sinni áður.  Fasteignir hafa hækkað í verði og þröngt er um leigumarkað.  Framundan er bylting í samgöngumálum og ekki nema nokkur ár í að Vestmannaeyingar fari að ferðast milli Vestmannaeyja og Suðurlands á bílum sínum og þá annaðhvort í gegnum jarðgöng eða með skipi sem siglir í Bakkafjöru (30 mínútna sigling).


Vissan um þetta held ég að komi til með að hafa áhrif.  Máli mínu til stuðnings er gaman að segja frá því að frá því 1. des. síðastliðinn og til 1. feb. fjölgaði um 20 manns í Eyjum og er þetta í fyrsta skipti í langan tíma sem hægt er að segja frá slíku.

Það er því við hæfi að enda þessa færslu með miðhluta þjóðhátíðarlags Gylfa Ægissonar frá 1974 því ég hef ákveðið að ef þessi texti á enn við um næstu áramót þá hyggst ég bjóða í opið partý og syngja það opinberlega.

Fólkinu fjölgar í Eyjunum enn
og öllum ber saman um það.
Hér eigi það heima, hér eigi það senn
heimsins fegursta stað.
Byggðin hún stækkar nú dag eftir dag
dafnar svo ótrúlegt er.
Ég eigna þér Eyja mitt ljúfasta lag
og lagið nú hefurðu hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Oddur Friðriksson

 Flott grein, full af bjartsýni bæjarstjórans okkar.  Hlakkar okkur til að fá að taka þátt í fjölguninni enda á leið til Eyjunnar fögru núna í febrúar eftir langa fjarveru vegna náms. Höfum stefnt að því  frá því við fórum árið 2001 að koma Heim og það er að rætast. Og ekki skemmir fyrir að við erum með einn ófæddan Vestmannaeyjing á leiðinni   Við höfum trú á Eyjum og því samfélagi sem þar er enda hvergi betra að vera. 

Kveðjur frá köben Sigurður O. og Anita Ársæls  

Sigurður Oddur Friðriksson, 6.2.2007 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband